Í heild hljóðaði spurningin svona:Hversu gamalt er og hvað merkir orðið gyðingur? Er samsvarandi orð um júða til í öðrum tungumálum? Geri ráð fyrir að orðið júði samsvari jew eða Jude.
Hér er einnig svarað spurningunni: Hvers vegna er orðið júði niðrandi? Í dönsku og þýsku eru notuð nauðalík orð um gyðinga sem ...
Orðið Talmúð þýðir „að læra“ á hebresku en vísar yfirleitt til safnrits margra bóka með lögum og margvíslegum túlkunum og útskýringum á ýmsum laga- og ritningargreinum. Næst á eftir Biblíunni, sem hjá gyðingum tekur aðeins til Gamla testamentisins, er Talmúð mikilvægasta rit gyðingdóms. Þetta mikla safnrit innihel...
Í lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr. 36/1993 og í reglugerð um kistur, duftker, greftrun og líkbrennslu nr. 668/2007 er ekki að finna skýrt ákvæði um að skylt sé að nota líkkistu við greftranir, eða að það sé ófrávíkjanlegt. Það segir þó ekki alla söguna um útfararsiði því til eru skýr ákvæði um ki...
Spyrjandi gefur sér að flest stríð heimsins hafi verið vegna trúarbragða. Þetta er að líkindum ekki rétt. Trúarbrögð hafa alla tíð blandast með ýmsum hætti í stríðsátök en rætur stríðsátaka má oftast finna í ýmis konar hagsmunatogstreitu frekar en í ólíku viðhorfi til almættisins. Trúarbrögð eru hins vegar oft...
Sami spyrjandi spurði líka um þetta:
Þar sem ekki er aðskilnaður ríkis og kirkju hér, get ég svo sem skilið hvers vegna hvítasunnan er frídagur (enda líka sunnudagur hvort sem er) en hvers vegna er næsti dagur á eftir líka frídagur, með tilheyrandi lokunum á opinberum stofnunum og öllum þeim óþægindum sem því ...
Í fyrstu Mósebók Gamla testamentisins (45.10) lét Jósef senda föður sínum þau skilaboð að hann skyldi flytja með fjölskyldu sína alla og búfénað, en mikil hungursneyð ríkti, til þess lands sem héti Gósenland. Gósenland var búsældarland í Egyptalandi og þar bjuggu Gyðingar um tíma. Þegar á 19. öld var farið að nota...
Líkbrennsla hefur tíðkast í mörg þúsund ár. Viðhorf til líkbrennslu eru iðulega nátengd trúarbrögðum og menningu á hverjum stað á hverjum tíma. Hjá Grikkjum og Rómverjum var líkbrennsla algengur útfararsiður en eftir því sem kristni breiddist út lögðust bálfarir að mestu leyti af í Evrópu. Á miðöldum voru lík hel...
Í janúarmánuði 2019 voru birt 48 ný svör á Vísindavefnum. Að auki var fjölmörgum fyrirspurnum svarað með því að vísa lesendum á efni sem til er og sumum spurningum var svarað með tölvupósti og símtölum.
Flestir höfðu áhuga á að fræðast meira um sápugerð með vítissóda, en margir lásu einnig svör um sagógrjón, mo...
Kristur er ekki eftirnafn eða síðara nafn Jesú, heldur fela orðin Jesús Kristur í sér trúarjátningu af hálfu kristinna manna. Þessi tvö orð merkja raunar Jesús er Kristur en Kristur er gríska og merkir það sama og Messías á hebresku. Kristur eða Messías þýðir hins vegar hinn smurði á íslensku. Trúarjátningin Jesús...
Masada er fornt fjallavirki í Ísrael, nærri suðvesturströnd Dauðahafsins. Það var Heródes konungur í Júdeu, sá sem sagt er frá í frásögunum af fæðingu Jesú í Nýja Testamentinu, sem lét reisa virkið einhvern tímann um eða fyrir 30 f.Kr. Kletturinn sem virkið stendur á rís í um 400 metra hæð yfir Dauðahafinu og er e...
Gestir Vísindavefs Háskóla Íslands hafa aldrei verið fleiri en árið 2019. Samkvæmt tölum um samræmda vefmælingu á Íslandi nálgast notendur Vísindavefsins nú eina milljón á ári og fjölgaði þeim um rúm 26% frá árinu 2018. Heildarfjöldi notenda árið 2019 var 977 þúsund, innlit voru rétt tæplega 2,4 milljónir og flett...
Spurningunni er í raun fljótsvarað því að Ísraelsmenn hafa nákvæmlega engan rétt til yfirráða á hernámssvæðunum í Palestínu. Til þess að skilja betur um hvað málið snýst er hins vegar nauðsynlegt að líta nokkuð aftur í tímann.
Ísraelsmenn lögðu svæðin undir sig í stríði sem þeir hófu gegn nágrannaríkjum sínu...
Árið 711 leiddi herforinginn Tariq ibn Ziyad 1200-1700 manna her Berba frá Norður-Afríku til Suður-Spánar. Herinn kom að landi við Gíbraltar en sem dregur nafn sitt af brenglaðri útgáfa af arabíska heitinu Jebal Tarik sem merkir 'fjall Tariqs'. Eftir að hafa komið her sínum á land er sagt að Tariq hafi látið brenn...
Stutta svarið er það að þetta er ekki vitað alveg til hlítar en líklegast er að talan sjö hafi orðið fyrir valinu af því að þá tekur hvert tunglkvartil sem næst eina viku. Sjö daga vikan festist síðan í sessi af sögulegum og menningarlegum ástæðum.
Þetta er merkileg spurning sem á sér ýmsar hliðar. Á su...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Getur einstaklingur vitað hvort hann er Gyðingur með því að taka próf? Og þá hvar.
Spurningin fjallar um uppruna einstaklings. Ímyndum okkur Jón Strand, sem rekur á fjörur en man ekkert um sitt fyrra líf. „Hver er ég og hvaðan kom ég“, væru eðlilegar fyrstu spurningar Jóns. Ha...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!